júní 04, 2010
Vortex Temporum á Listahátíð
Meistaraverkið Vortex Temporum eftir Gérard Grisey heyrist á Íslandi í fyrsta sinn á Listahátíð í Reykjavík í ár. Flutningur er í höndum The Formalist Quartet sem er staðsettur í Los Angeles, Brian Walsh, klarínettuleikara, Berglindar Maríu Tómasdóttur, flautuleikara og Tinnu Þorsteinsdóttur, píanóleikara. Einnig verður frumflutt nýtt verk Atla Ingólfssonar sem hann skrifaði fyrir hópinn af þessu tilefni og fluttir strengjakvartettar eftir Úlfar Inga Haraldsson og Nicholas Deyoe. Íslenska óperan 4. júní kl: 20.00. Tónleikunum verður varpað beint á Rás 1. Meira á:
Listahátíð í Reykjavík
The Formalist Quartet
