Random

Heim Dagatal Ferilskrá Gallerý English Tölvupóstur

maí 19, 2010

Heimsfrumflutningur á píanóverki eftir Magnús Blöndal

Spennandi prógramm á Raflosti í ár! Flutt verða Sonorities I, II og III (1963-1972) eftir frumkvöðulinn Magnús Blöndal Jóhannsson og er Sonorities II frá árinu 1968 heimsfrumflutt á þessum tónleikum. Önnur verk á efnisskránni eru: Kalimba fyrir dótapíanó og rafhljóð (2005) eftir austurríska tónskáldið Karlheinz Essl og frumflutt píanóverk eftir tvö ung tónskáld, Laser cat (2010) eftir Jesper Pedersen og Harsamvaða (2010) eftir Guðmund Stein Gunnarsson. Í kjölfarið verður heimildarmyndin Surtur fer sunnan (1965) eftir Ósvald Knudsen um Surtseyjargosið sýnd, sem Magnús samdi tónlist við. Einleikstónleikar miðvikudaginn 19. maí 2010, Sölvhóli, sal Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13 kl: 20
Raflost
Karlheinz Essl
Guðmundur Steinn Gunnarsson
Jesper Pedersen