október 16, 2009
Sláturtíð 15-17 október
Sláturtíð verður haldin dagana 15.-17. október á vegum S.L.Á.T.U.R, Samtaka listrænt ágengra tónsmiða utan Reykjavíkur og í samvinnu við Airwaves. Haldnir verða þrennir Sláturtónleikar og ein íþróttakeppni! M.a. verður tónverkið Harfgreni fyrir einstrengingspíanó í náttúrulegri stillingu eftir Guðmund Stein Gunnarsson frumflutt á föstudagskvöldið 16. október á tónleikum í Skemmtihúsinu, Laufásvegi 22 í Reykjavík, sem hefjast kl: 20. Laugardagskvöldið 17. október heyrast í Fríkirkjunni kl: 20.30 m.a. verka 319° fyrir dótapíanó og slagverk eftir Áka Ásgeirsson, the Negotiation of Context - A fyrir píanó og harmóníum eftir Davíð Brynjar Franzson. Nánari efnisskrá á heimasíðunni hér neðan
S.L.Á.T.U.R.
